Innrétting / Vörn
Innrétting bílsins er daglega undir miklu álagi og krefst sérhæfðrar meðhöndlunar til að viðhalda útliti, hreinlæti og endingu. Hjá ÓK Bón bjóðum við faglega hreinsun og langtímavörn fyrir allar gerðir innréttinga, þar á meðal leður, textíl, alcantara, plast, vinyl og gúmmí.

Vinnslan hefst á nákvæmri greiningu á ástandi innréttingarinnar og felur meðal annars í sér:
- djúphreinsun á innréttingu og textíl sé þörf
- lyktar- og bakteríueyðing
- vörn gegn blettum, UV-geislun og sliti
Til að tryggja raunverulega og varanlega vernd notum við sérhæfðar lausnir frá Titan Coatings, þar sem hvert yfirborð fær rétta meðhöndlun:
- BioRepel® – notað á öll textílefni og alcantara. Myndar ósýnilega vörn sem hrindir frá sér vökva, óhreinindum og blettum án þess að breyta áferð eða loftun textílsins. BioRepel® býr jafnframt yfir bakteríudrepandi eiginleikum sem dregur úr ólykt, hindra vöxt myglu og stuðla að hreinni og heilbrigðari textíl til lengri tíma.
- Leather Coat – sérhönnuð vörn fyrir leður sem ver gegn sliti, litaflutning, UV-geislun og þurrki, án þess að skilja eftir gljáa eða “sleipleika”.
- Ultra – notað á plast, vinyl og gúmmí. Veitir djúpa, langvarandi vörn gegn UV-skemmdum, fölnun og þornun, á meðan náttúrulegt útlit yfirborðsins er varðveitt.
Öll efni sem við notum eru valin með það að markmiði að varðveita áferð, lit og upprunalegt „feel“ innréttingarinnar — án gervigljáa eða yfirborðstilfinningu sem á ekki heima þar.
Markmiðið er hreinni, heilbrigðari og endingarbetri innrétting sem heldur bæði daglegum þægindum og langtíma verðgildi ökutækisins.