Um ÓK Bón
ÓK Bón var stofnað árið 2019 með það markmið að veita faglega, áreiðanlega og tæknilega yfirburði í bílaumhirðu þar sem gæði, ferli og langtímaniðurstöður eru í forgrunni. Frá upphafi hefur fyrirtækið lagt ríka áherslu á að hámarka þjónustugetu á öllum sviðum rekstursins – allt frá hágæða lakkvörnum og hreinsiefnum yfir í þjónustu, fræðslu og þekkingarmiðlun.

Our Crew, Our story
Niðurstaðan skiptir meira máli en loforðin.

Mikael Andri Magnússon
Framkvæmdastóri, RUPES kennari & Titan Coatings technical master
ÓK Bón er ekki bónstöð heldur sérhæft detailing verkstæði með áheyrslu á lakkslípun, lakkvarnir og PPF grjótvarnarfilmur.
"Hvað er markmiðið? Að skila niðurstöðu sem lítur ekki aðeins vel út í dag heldur til framtíðar sem byggir á réttum vinnubrögðum, raunverulegri vörn og fagmennsku í hverju skrefi."
ÓK Bón starfar í nánu samstarfi við Titan Coatings, sem er leiðandi framleiðandi lakkvarna hannaðra fyrir raunverulegar aðstæður. Eigandi fyrirtækisins, Mikael Magnússon, starfar jafnframt sem Technical Master hjá Titan Coatings og tekur virkan þátt í þróun, prófunum og fínstillingu vörunnar hér á landi. Með prófunum í íslensku loftslagi – þar sem kuldi, hitasveiflur og erfið veðurskilyrði setja yfirborð ökutækisins í mikla raunprófun – er tryggt að lausnirnar sem við bjóðum okkar viðskiptavinum standist kröfur um endingu, vörn og stöðugleika til lengri tíma.
Árið 2024 hóf ÓK Bón næsta kafla í vegferð sinni þegar fyrirtækið varð RUPES BigFoot Car Detailing Center. Í dag starfar ÓK Bón sem eina viðurkennda RUPES BigFoot Car Detailing Center á Íslandi, þar sem aðstaða, vinnubrögð og verklag eru formlega viðurkennd og tekin fyrir af RUPES. RUPES hefur í yfir 70 ár verið leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu slípivara, véla og kerfa fyrir lakkslípun.
Mikael Magnússon er jafnframt viðurkenndur kennari hjá RUPES og tekur þátt í fræðslu, þjálfun og miðlun þekkingar samkvæmt stöðlum fyrirtækisins. Sú sérþekking tryggir að öll lakkslípun hjá ÓK Bón byggir á réttum aðferðum, öruggum vinnubrögðum og endurteknum gæða niðurstöðum.
Starfsmenn ÓK Bón búa yfir meira en 10 ára reynslu í faginu og vinna eftir skilgreindum ferlum sem tryggja faglega framkvæmd í hverju verkefni. Allt starf fyrirtækisins byggir á einni skýrri hugsjón:
Að skila raunverulegum, varanlegum niðurstöðum með fagmennsku, heiðarleika og tæknilegri þekkingu að leiðarljósi.