Lakkslípun (mössun)

Lakkslípun er ein mikilvægasta og tæknilegasta þjónusta sem við bjóðum upp á. Markmiðið er að leiðrétta ófullkomleika í lakki og endurheimta dýpt, gljáa og jafnvægi yfirborðsins - þó lakkið sé á nýjum bíl.

Lakkslípun (mössun)

Hjá ÓK Bón hefst ferlið alltaf á ítarlegri greiningu þar sem lakkið er metið með tilliti til:

  • þykktar og ástands
  • aldurs og fyrri viðgerða ef eru
  • rispur, upplitunar og efnaáhrifa

Út frá þeirri greiningu er valin rétt vinnsluaðferð, hvort sem um er að ræða:

  • einnaþrepa lakkslípun til að bæta heildarútlit
  • eða margþrepa mössun fyrir hámarks leiðréttingu

Við notum eingöngu RUPES BigFoot vélar, púða og slípiefni og vinnum eftir staðlaðri, öruggri aðferðafræði sem tryggir jafna útkomu og langvarandi niðurstöðu.

Lakkslípun er oft forsenda þess að lakkvörn eða PPF filma nái fullum árangri og er því lykilatriði í vinnslu fyrir slíkar varnir.

ÓKbón - Lakkslípun (mössun)